Þórsminni heyrir nú sögunni

30.11 2009 - Mánudagur

Þórsminni heyrir nú sögunni Á sínum tíma lagði hugumstór vopnfirðingur í það verk að reisa sér þak yfir höfuðið, ekki reisti hann stærsta húsið í byggðarlaginu en hús engu að síður. Í áratugi þjónaði það hlutverki sínu sem heimili fjölskyldna og varð á sinn hátt órjúfanlegur hluti af sögu staðarins. Smátt í forminu stóð það á hæðinni milli stórhýsa og reyndi sitt að gera sig gildandi - og gerði það sem athvarf þeirra er kusu að búa þar. Þórsminni var nafn þess og það þekktu vopnfirðingar sem á annað borð veltu fyrir sér húsunum í bænum. En ekki lengur, Þórsminni er minningin ein og líkt og fór fyrir bragganum í Vaglaskógi stendur botnplatan ein sem áminning þess sem eitt sinn var. Fyrir húsbyggjandann tók það mánuði í byggingu, þjónaði sem heimili um áratuga skeið en fyrir Hilmar og félaga tók það ekki nema fáeinar klukkustundir að verða hluti af horfinni tíð - Þórsminni er minningin ein. Myndir af niðurrifinu sl. föstudag má finna á http://fagri15.123.is en sem fyrr er heimasíðan ekki sem skyldi.




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir