Fjölskylduskemmtun - hápunktur Vopnafjarðardaga

30.11 2009 - Mánudagur

Fjölskylduskemmtun - hápunktur Vopnafjarðardaga 26.07.2009 Áður en kom að leikverkinu, Brestir og brak, söng Kristjana súpersöngkona með blúsbandinu, sem stóð saman af ungum vopnfirðingum og reyndari tónlistarmönnum. Var flutningurinn framúrskarandi en þó einungis upphitun fyrir það sem í vændum var því leiksýningin var frábær! Það var með stolti sem vopnfirðingar fylgdust með ungmennum sínum á sviðinu þar sem þau ýmist léku, sungu eða dönsuðu við verk bræðranna kenndir við Múla - til hamingju leikarar, til hamningju þjálfarar, til hamingju vopnfirðingar - bravó! Þessi viðburður verður að hluta til sýndur um ókomin ár á nýjum skjá Múlastofu ásamt leik Einars Braga og Jóns Hilmars á skáldakvöldinu - smám saman mun efnið vaxa sem fer inn á í Múlastofu en mjór er mikils vísir. Verðskuldar leiksýningin að hennar verði minnst um ókomna tíð. Minnt er á að myndir viðburða er að finna á http://fagri15.123.is Baldvin er einn þessa hæfileikaríka fólks sem þjálfað hefur ungmennin vopnfirsku sl. ár




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir