Miðbæjarskemmtun

30.11 2009 - Mánudagur

Útiskemmtun Vopnafjarðardaga var á sviðinu í miðbænum. Þar stigu á stokk heimasveitirnar Kleópatra og Húnar auk þess sem Leikhúsbandið lék nokkur lög ásamt söngvörum sínum, Halla og Góa. Var stemningin góð, hljóðkerfi Hljóðkerfisleigunnar skilaði 9.000 vöttum út til fólksins, fékk tónlistin þannig notið sín. Auk tónlistar á sviðinu voru tveir hoppkastalar á flötinni sunnan sviðs og útimarkaður á lóð Kaupvangs. Loksins, loksins tókst að koma hér á myndarlegum markaði og kunni fólk svo sannarlega að meta framtakið - brostu allir enda skein sól og sendi notalegan yl yfir samfélagið. Minnt er á að myndir viðburða er að finna á http://fagri15.123.is




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir