Skáldakvöld - meistaranna minnst

30.11 2009 - Mánudagur

Skáldakvöld hafa fyrir löngu unnið sér sess í menningarlífi vopnfirðinga og hefur menningarmálanefnd sveitarfélagsins iðulega lagt metnað sinn í að standa vel að þeim.

Að þessu sinni skyldi Múlabræðra minnst en þáttur þeirra í menningarlífinu mun smá saman vaxa í takt við vöxt Múlastofu.

 Ragnheiður Gyða Jónsdóttir (Múla Árnasonar) valdi efni til lestrar úr þjóðsögum föður síns en átti sjálf ekki heimangengt svo leitað var til heimamanna til lestrar; Ólafur Valgeirsson og Ágústa Þorkelsdóttir þekktust boðið og stóðu sig með sóma.

Tónlistarmennirnir, Einar Bragi - saxafónn og flauta - og Jón Hilmar - gítar - léku lög Jóns Múla og gerðu það snilldarlega.

Var kvöldið í heild sinni hið ánægjulegasta, þökk sé þeim er að því komu. Minnt er á að myndir viðburða er að finna á http://fagri15.123.is





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir