Vopnafjarðardagar ganga vel

30.11 2009 - Mánudagur

 Veðurstofa Íslands hefur haldið sig við að sumarhret sé u. þ. b. skollið á með snjókomu á hálendi landsins og kuli út með ströndinni. Óttast var að útidagskrá yrði ekki í boði í eins og spárnar hljómuðu en svo fór að sól skein við og við og nógsamlega hlýtt til að Leikhópurinn Lotta gat sýnt Rauðhettu á tjaldslæðinu, var gerður góður rómur að. Áður hafði dorgveiðin farið fram á Ásgarði, veiddist þar lítið en eitthvað þó og sigurvegarar voru krýndir eins og vera ber. Þátttakan var nokkur en svalur vindurinn ekki til að hvetja til þátttöku. Gönguferð um Hraunalínu sóttu 16 manns og röltu inn í sveit ásam Jósep H., Jobba, inn að Vatnsdalsgerði en þangað sótti Einar Björn hópinn nema þau sem kusu að rölta til baka. Á sama tíma sýndi Leikhópurinn Lotta Rauðhettu á tjaldstæðinu og skein bros á vörum flestra er leikurinn stóð yfir svo sem myndir Bjarka bera með sér. Klukkan 21 hófust tónleikar Guðrúnar Gunnars og hvílík skemmtun! Lög og ljóð Cornelis Vreeswijk voru flutt en afmælisbarnið, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, hefur þýtt textana og tekist einkar vel upp. Svo sem áður greinir voru tónleikarnir í hæsta gæðaflokki og sá góði hópur sem mættur var skemmti sér afar vel. Minnt er á að myndir viðburða er að finna á http://fagri15.123.is

 Húnar á sviðsvagni Vopnafjarðardaga sl. árs





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir