Listasmiðjurnar vinna að þessu sinni alfarið saman þar sem þemað eru verk bræðranna Múla og verður afar spennandi að sjá afraksturinn n. k. laugardag á fjölskylduskemmtuninni.
Kennarar eru eins og áður greinir meðal okkar fremsta listafólks og slíkur hvalreki fyrir samfélagið vopnfirska að aldrei verður ofmetið - megi öllum er að koma farnast vel.
Golfmót Saga Capital fór fram í gærkvöldi við fremur erfiðar aðstæður, lamdi norðanvindurinn á keppendum, sem létu sér fátt um finnast og lögðu ótrauðir í baráttuna við litla hvíta boltann.
Leikið var að vanda samkvæmt "Texas Scramble" þar sem tveir einstaklingar leika saman og sameiginlegt skor þeirra reiknast, þ. e. betri árangur keppanda reiknast. Mæting var með ágætum eða 26 keppendur og höfðu allir ánægju af enda hún fyrst og síðast höfuðatriðið með þátttökunni. Öllu gamni fylgir nokkur alvara og vinningar glæsilegir og koma frá Saga Capital. 
Svo fór að Páll ... og Sigurður Kristinsson höfðu sigur, léku á samtals 30 höggum, í öðru sæti komu knattspyrnukapparnir, Davíð Ólafsson og Bjarni Þorsteinsson á 36 höggum, og í þriðja sæti höfnuðu bræðurnir, Indriði og Eyvindur, á 37 höggum. Athugið:
Myndir frá mótinu er að finna á heimasíðu hirðljósmyndara sveitarfélagsins, Bjarka Björgólfssonar, http://fagri15.123.is Ástæða þessa er sú að vandræði hafa veirð með heimasíðuna, leysir þessi kostur málið að nokkru - lítið á heimasíðu Bjarka og njótið þess að skoða myndir frá hátíðinni. Sum sé: http://fagri15.123.is
Í dag, þriðjudaginn 21. júlí, fer fram kappleikur á Íslandsmótinu í knattspyrnu er Einherji tekur á móti Leikni frá Fáskrúðsfirði. Má búast við hörkuleik en Einherji hefur komið á óvart á Íslandsmótinu og er sem stendur í 2. sæti riðilsins; Leiknir er hins vegar sýnd veiði en ekki gefin, síðast skildu liðin jöfn 3:3 í baráttuleik á Fáskrúðsfirði. Áfram Einherji!