Dagskrá Vopnafjarðardaga 2009:
Mánudagur 20. júlí.
• Listasmiðjur taka til starfa; leik-, dans- og söngsmiðja – undir handleiðslu úrvalsfólks, láttu sjá þig! Skráning hjá Sigríði Dóru í tel. 473-1246/895-4690 kl. 16-19 daglega.
• Golfmót Saga Capital kl. 19:00. Leikið skv. „Texas Scramble“. Skráning hjá Skráning hjá Hrafnhildi í síma 690-2453
Þriðjudagur 21. júlí.
• Vopnfirsk list í safnaðarheimilinu opnar kl. 17:00. Opin síðan fös.-sun.dag
• Vopnafjarðarvöllur: Einherji – Leiknir, Fáskrúðsfirði, kl. 20:00 – Íslandsmótið.
Miðvikudagur 22. júlí.
• Dorgveiði við höfn kl. 16:00 - 2 flokkar, yngri en 9 ára og 9 – 12 ára.
• Gönguför inn Hraunalínu kl. 18:00 undir leiðsögn Jóseps H. Jósepssonar. Fremur létt ganga í klukkustund með stoppi. Þátttökugjald kr. 500,-
• Leikhópurinn Lotta sýnir Rauðhettu á tjaldstæðinu kl. 18:00. Miðaverð kr. 1.500,- fullorðnir og 1.000,- börn.
• Tónleikar Guðrúnar Gunnarsdóttur í Miklagarði kl. 21:00. Söngfuglinn ljúfi flytur lög Cornelis Vreeswijk ásamt valinkunnum listamönnum. Miðaverð kr. 1.500,-
Fimmtudagur 23. júlí.
• Jón Múli og Jónas – meistaranna minnst á skáldakvöld í Miklagarði kl. 20:30. Austfirsku tónlistarmennirnir, Einar Bragi saxafónleikari og Jón Hilmar gítarleikari, leika lög bræðranna og kynna tilurð þeirra. Sagnamaður er Ragnheiður Gyða Jónsdóttir (Múla Árnasonar). Miðaverð kr. 1.500,-

Föstudagur 24. júlí.
• Útiskemmtun í miðbænum. Vopnfirsku hljómsveitirnar, Húnar og Kleópatra, ásamt Halla og Góa skemmta á sviðinu á torginu, hoppkastalar fyrir börnin (á ábyrgð foreldra), markaður við Kaupvang. Dekur, miðill, spákona, heilun, reiki o. fl. ásamt myndasýningu í Kaupvangi. Dagskráin á torginu hefst kl. 15 með léttum tónum í hljóðkerfinu.
• „Leikhúslögin“, Halli og Gói skemmta í Miklagarði kl. 22:00 – í anda sl. árs … sem var frábær! Miðaverð kr. 1.500,- fullorðnir, 500,- unglingar/börn. Að skemmtun lokinni fara ungmenni undir 18 ára heim. Dans með leikhúsbandinu ef fólk vill!
Sandvíkurdagur, laugardaginn 25. júlí.
• Boðhlaup og ýmiskonar sprell kl. 14:00 – með þátttöku sprellaranna Halla og Góa. Takið endilega þátt í glensinu!
• Sandlistaverkakeppni kl. 14:30 – með þátttöku Halla og Góa, kunna þeir nokkuð? Keppt í fullorðins-/fjölskyldu- og unglingaflokki. Frumlegasta verkið tekur til beggja flokka. Vistvænt skreytiefni heimilt að nota. Tímamörk eru 1.5 klst.
• Fjársjóðsleit kl. 16:00. 30 vinningar í (kók)flöskum. Ræst að lokinni sandlistaverkakeppni. Tímamörk ½ klst.
• Berbakreið í boði hestamannafélagsins Glófaxa allan tímann
Athuga: Aðstæður í Sandvíkinni kunna að vera viðsjárverðar á vissum stöðum, foreldrar fylgist með börnum sínum
• Fjölskylduskemmtun í Miklagarði kl. 20:30. Mögnuð skemmtun með tónlistarfólkinu Kristjönu Stefánsdóttur, Agnari Má Magnússyni, Benedikt Brynleifssyni, Róberti Þórhallssyni og Baldvini Eyjólfssyni – og umfram allt Vopnfirskum ungmennum/og eldri úr öllum smiðjunum. Þema: Söngleikir Jóns Múla og Jónasar Árnasona – úr smiðjunum þremur.
• Stórdansleikur í Miklagarði kl. 24:00 með súpersveit Kristjönu Stefánsdóttur, þ. e. úrvalslið smiðjanna ásamt Halla og Góa – frábært lið! *Aðgangur kr. 2.700,- Aldurstakmark 18 ár og miðast við fæðingardag.
Sunnudagur 26. júlí.
• Vopnafjarðarkirkja kl. 14:00, léttmessa með þátttöku Kristjönu Stefánsdóttur og Agnars Más Magnússonar. Af þessari messu geturðu einfaldlega ekki misst!
Múlastofa og Kaupvangskaffi opin vikuna alla fram á kvöld.
Tilboð á Ollanum og Hótel Tanga – lengri opnun í Kauptúni.
Sundlaugin Selárdal opin alla daga frá kl. 10:00 – 19:00.
Eftirtaldir aðilar styðja Vopnafjarðardaga 2009:
Vopnafjarðarhreppur (sbr. merki) – Menningarráð Austurlands - Velferðarsjóður barna – HB Grandi – Bílar og vélar – Vífilfell - N1 – VÍS – Landsbankinn – Mælifell – Ollinn – Kauptún – Vopnafjarðarsókn – Hótel Tangi – Flugfélag Íslands – JMJ - Joe´s - Síminn - Saga Capital