Nýr slökkvibíll til Vopnafjarðar

14.05 2010 - Föstudagur

Það er ekki á hverjum degi sem nýr slökkvibíll er keyptur, hvori í litlu samfélagi né stóru, og vekur slíkur eðlilega mikla athygli heim kominn. Fer saman að bílar þessir eru einkar glæsilegir á að líta, hlaðnir búnaði sem fyrir leikmann eru töfrum líkastir, og mikilvægi þeirra fyrir samfélagið. Ólíkt velflestum fjárfestingum öðrum er horft til þess að bíll sem þessi verði sem minnst notaður en tryggt er að bíllinn nýi verður hreyfður hvern virkan dag vegna hingaðkomu flugvéla. Skýrist ferðatíðnin á eignarhaldi bifreiðarinnar, sem er til helminga milli Vopnafjarðarhrepps og Flugstoða ohf. Á heimasíðu Brunavarna á Austurlandi segir:

Mikil breyting hefur átt sér stað á Vopnafirði í öryggismálum. Nýr fullkominn slökkvibíll var afhentur í slökkvistöðina á Vopnafirði frá Sigurjóni Magnússyni ehf.

Slökkvibílinn er í eigu Vopnafjarðarhrepps og Flugstoða ohf. og mun hann sinna bæði staðarslökkviliðinu og flugvellinum á staðnum. Vopnfirðingar eiga oft eftir að vera varir við bílinn á ferðinni í byggðalaginu þar sem flogið er áætlunarflug alla virka daga til og frá staðnum.

Bíllinn er hinn glæsilegasti og smíði hans vönduð.

Heimildarmaður síðunnar tók fáeinar myndir af þessum tímamótum.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir