Allt er breytingum undirorpið, það á jafnt við um vefsíður og önnur mannanna verk. Um árabil þjónaði vefsíða sú er Jóhann Ísberg skapaði Vopnfirðingum og öðrum notendum vel en enginn fær ellikerlingu flúið og í dag opnar Vopnafjarðarhreppur með stolti nýja heimasíðu sína. Síðuna hefur TM Sorftware unnið og þó enn standi nokkur verk óunnin er bróðurpartur síðunnar klár og er óskandi að hún nái að uppfylla verkefni sitt við miðlun upplýsinga til þeirra er inná síðuna fara. Ábendingar eru vel þegnar sem fyrr því þó hafi til tekist má alltaf gera betur og víst þarf heimasíða sveitarfélagsins að vera í stöðugri þróun.