Síld berst til Vopnafjarðar

01.06 2010 - Þriðjudagur

Fyrir samfélag sem á því sem næst undir gjafmildi hafsins eru það gleðitíðindi þegar afli berst á land. Í gær kom Lundey NS 14 með 300 tonn af góðri síld úr norsk-íslenska stofninum og er þess vænst að Ingunn AK muni fylgja í kjölfarið - og þá líklega á morgun.

Á heimasíðu HB Granda segir m. a.:

Veiðar skipa HB Granda úr norsk-íslenska síldarstofninum eru nú að hefjast en reiknað var með því að Lundey NS yrði komin á miðin um 180 sjómílur norðaustur af Vopnafirði nú síðdegis. Ingunn AK átti að láta úr höfn á Akranesi í dag og Faxi RE fer væntanlega til veiða n. k. sunnudag.

Arnþór Hjörleifsson, skipstjóri á Lundey, sagðist eiga eftir um tveggja tíma siglingu á veiðisvæðið þegar rætt var við hann nú um miðjan dag. Að sögn Arnþórs eru ein fimm íslensk skip nú að veiðum. Rólegt mun hafa verið yfir aflabrögðunum en skipin hafa þó verið að fá frá um 100 tonnum í holi og upp í um 200 tonn.

,,Það er misjafnt hve menn draga lengi en það getur verið frá um þremur tímum og upp í um sex tíma. Mér skilst að aðstæður á veiðisvæðinu séu mjög svipaðar og þegar við hófum vertíðina í fyrra. Síldin stendur frekar djúpt yfir hádaginn en fyrir og eftir miðnættið á hún til að skjóta sér upp í nokkra tíma og þá hefur verið best að eiga við hana,“ segir Arnþór Hjörleifsson.

Sem fyrr segir er veiðisvæðið nú um 180 mílur norðaustur af Vopnafirði og því innan íslensku landhelginnar. Ekki er þó nema um 40 mílna sigling yfir á alþjóðlega hafsvæðið sem kennt er við Síldarsmuguna.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir