Skólaslit Vopnafjarðarskóla

02.06 2010 - Miðvikudagur

Skólaslit eru velflestum nemendum ánægjuleg, þau marka upphaf sumarleyfis með öllum þeim ævintýrum sem sumarið felur í sér. Stemningin er ljúfsár fyrir þau elstu, sem ekki eiga afturkvæmt í skólann sinn, þó vera kunni að fæst þeirri leiði hugann að því fyrr en síðar á lífsleiðinni. Þau sem útskrifuðust nú, sex að tölu, fylgdu nýbyggingu skólans úr hlaði fyrir réttum 10 árum, líkt og kom fram í ræðu skólastjóra, Aðalbjörns Björnssonar.

Nemendur voru 85 í vetur, 6 yfirgefa skólann en 16 koma inn á komandi hausti svo útlit er fyrir fjölgun nemenda í fyrsta sinn um langt árabil - er það fagnaðarefni. Skólastarfið gekk í heild sinni vel, nemendur 7. bekkjar voru nemenda þrifalegastir og hlutu farandbikar þar að lútandi 5 sinnum, 6. bekkingar 3var meðan 10. bekkingar náðu honum aldrei. Á hinn bóginn unnu þeir fótboltann alla mánuði vetrarins og stóðu sig almennt vel í starfi sínu í vetur. Er þeim óskað alls velfarnaðar á nýjum vettvangi og hinum góðrar endurkomu að hausti.

                                            





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir