Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þrátt fyrir misjafnt tíðarfar kemur vor að loknum vetri og sumar í framhaldi af því. Allt sl. sumar biðu vopnfirðingar þolinmóðir sumarsins og horfa með sömu þrá til þess sem nýhafið er. Gefi dagurinn í dag einhverja mynd af því sem í vændum er getum við horft bjartsýn fram á veginn. Óháð hvað nánasta framtíð ber í skauti sér mæta vinnuskólaungmenni með bros á vör til vinnu sinnar sumar hvert, í dag mætti yngsti hópurinn til starfa og fékk sum sé prýðisgott start og hvað er betra en góð byrjun?