Sjómannadagurinn er í dag - nýjum báti fagnað

06.06 2010 - Sunnudagur

Dagurinn í dag er sérlega ánægjulegur fyrir þær sakir að vopnfirðingum gefst tækifæri til að fagna nýjum báti er kom til heimahafnar sl. föstudag. Heiðar Runólfsson hefur fest kaup á 15 tonna yfirbyggðum báti frá Grindavík, sem var í eigu Festi, og hyggst þegar á þriðjudag fara í prufutúr á nýja bátnum, sem verður með 3-4 menn í áhöfn. Eru þetta mikil tíðindi í litlu sjávarplássi, mun minnsti bátur Heiðars verða seldur en Hólminn verða hér áfram. Kvóta þarf útgerðin að mestu að leigja en dugnaðarforkurinn Heiðar vílar ekki fyrir sér að hella sér útí slaginn með góða pilta til beggja handa - og landa afla sínum á Vopnafirði. Árnaðaróskum er hér með komið á framfæri.

    

Hefðbundin dagskrá er á sjómannadegi vopnfirðinga, sem hófst með siglingu björgunarbáts og smábáta kl. 10:30. Við tók ýmiskonar sprell við höfnina en kl. 14:00 athöfn við minnismerki um drukknaða sjómenn og loks hátíðarkaffi í félagsheimilinu Miklagarði kl. 15:00. Þar verða konur heiðraðar og öll 7 ára börn fá afhenta reiðhjólahjálma frá Kiwanis.

                                





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir