Kafbátur til Vopnafjarðar?

11.06 2010 - Föstudagur

Veltu sumir því fyrir sér hvort "bátur" þessi tengdist sjómannadeginum eitthvað meðan aðrir óttuðust að nú væru Rússarnir loks komnir til landsins en því hefur oft verið spáð að myndi gerast. Er ekki að undra þó heimildarmaður hafi svitnað ögn yfir þeirri sýn er við blasti utan vöruskemmunnar í miðbæ Vopnafjarðar - en góður maður benti sama á að hér væri um manngenga rotþró að ræða. Mikill var léttirinn yfir fregnunum enda óvíst hvernig íbúar litla samfélagsins hefðu brugðist við verandi friðarins fólk og ekki annað. 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir