Þeir sem voru á Vopnafirði í gær, fimmtudaginn 10. júní, vita að framundir kl. 19 var veður eins og það á að vera að sumri með mildan sunnanþey, sól og/eða sólarglennu. Ekki lengur en svo. Komið var að kaflaskiptum, fyrst tók að rigna, svo fór að hellirigna og enn síðar var boðið uppá slagveður. Knattspyrnan leið fyrir veðrið þó allir hlutaðeigandi hafi gert sitt besta, áhorfendur drógu sig smám saman inní skel - eða öllu heldur bíl - þó einstaka hraustmenni úr hópi karla og kvenna hafi haldið út leikinn á enda.
Einherji lék undan allhvössum vindi í fyrri hálfleik að suðurmarki vallarins líkt og vindurinn blés, fékk liðið urmul færa til að gera útum leikinn en einungis skildu liðin af eitt mark í hléi, sjálfsmark að auki en þau telja jafnt á við hin. Ekki einungis voru heimamenn klaufar við mark gestanna, markvörður þeirra varði ítrekað stórvel.
Síðari hálfleikur var býsna fjörugur, Huginsmenn fengu nú sín færi - maður á móti manni varði Tomislav afburðavel í stöðunni 1:0 og má segja að sú markvarsla hafi skilið liðin af þegar upp var staðið. Innkoma Gunnlaugs Bjarnar sá til að Eyjólfur hresstist, átti hann snilldarsendingu á Ivo - sem átti að skora a. m. k. 2 í leiknum - sem felldur var innan teigs, víti. Gísli Freyr þrumaði knettinum í bláhornið, jafn gott því markvörðurinn fleygði sér í rétt horn. Gunnlaugur var hvergi nærri hættur og uppá sitt eindæmi skoraði hann 3ja mark heimamanna með því að taka mann og annan á - stórglæsilega að verki staðið. Öruggur sigur var í höfn og vonandi, vonandi boðar það bjartari tíð, liðið lék á stundum með ágætum.
Því miður var heimildarmaður ekki með myndavél við höndina að þessu sinni, ekki endilega vegna boltans heldur fyrir þær sakir að heill regnbogi myndaði stórbrotna umgjörð um leikinn - og ekki nóg með það, annar sást auk heldur. Þetta kunna að vera einhver skilaboð, í dag hófst HM í knattspyrnu í Suður-Afríku, sem kallast ávallt Regnbogalandið meðal íbúa þess.
Hér fylgja svo myndir frá blíðunni á sl. hausti - áfram Einherji!
