Fundurinn var venjubundinn og þó. Undir niðri hvíldi sú staðreynd að af þeim 7 hreppsnefndarmönnum sem við borðið sátu myndu 6 hverfa fyrir fullt og allt - raunar sá 7undi en Borghildur Sverrisdóttir var ekki á fundinum en hættir eftir 12 ára setu. Aðalbjörns bíða ný verkefni en þau sem snúa að vettvangi sveitarstjórnar auk hinna sem kveðja; Ólafur Ármannsson skilur við eftir starf í þágu samfélagsins allt aftur til ársins 1986, Anna Pála á 12 ár að baki en hin skemur þó þau hafi sannarlega skilað sínu á ferlinu sínum í sveitarstjórn, Björn Halldórsson, Þórdís Þorbergsdóttir og Halldóra S. Árnadóttir. Eftir situr ein Guðrún Anna Guðnadóttir.
Hins vegar er því þannig farið að nýtt fólk kemur í staðinn, endurnýjun á sér stað hér sem annars staðar og í því felst styrkur að sveitarstjórinn Þorsteinn skuli enn á ný halda um framkvæmdastjórnina. Er það er samdóma álit þeirra er málið varðar að á erfiðum tímum er þörf fyrir reynsluna sem aldrei fyrr.
Á þessum merkilega fundi var boðið upp á góðmeti að fundi loknum en langt er um liðið síðan hreppsnefndarfólk fékk annað á fundum en molasopa.
Um leið og þessu góða fólki er þakkað óeigingjarnt framlag til sveitarfélagsins er nýtt fólk boðið velkomið að hreppsnefndarborði og verður það kynnt þegar ný sveitarstjórn kemur saman í þessum mánuði. Megi þeim vegna vel ásamt reynslumanninum, sveitarstjóranum.
