Vinnsla gengur vel

16.06 2010 - Miðvikudagur

Í upphafi vertíðar mun hafa verið töluverð áta í síldinni og mun vera í samræmi við fyrri vertíðir og ekkert sem kom á óvart.

Mikið hefur verið að gera á Vopnafirði viðvíkjandi síldarvinnsluna enda staðið yfir miklar breytingar innan veggja HB Granda, m. a. tekið í notkun nýtt innmötunarkerfi fyrir síld og makríl, breyttar vinnslulínur með tilkomu nýrra, sjálfvirkra flökunarvéla. Öll var síldin unnin í s. k. samflök í upphafi vertíðar.

Skipin sem fært hafa gull hafsins að landi eru Lundey NS, Ingunn AK og Faxi RE. Að sögn Guðlaugs Jónssonar, skipstjóra á Ingunni, hefur vel gengið en í í sl. viku voru alls átta íslensk skip og eitt færeyskt komin á svæðið þar sem síldina hefur verið að finna og svo virðist sem töluvert magn sé að finna þó enn sé  hún horuð og töluverð áta sé í henni.

Síldin, sem Ingunn kom t. a. m. með til Vopnafjarðar, er af jafnri stærð, um 320 til 330 grömm að þyngd, og nýtingin í vinnslunni er góð þar sem sáralítið hefur flokkast frá. Síldin er öll unnin í samflök. Eitthvert hlé var á vinnslu hjá fiskiðjuveri HB Granda á Vopnafirði en ekki langt því skipin eru að koma til hafnar eitt af öðru.

Mikilvægi útgerðar hefur á skömmum tíma stóraukist á nýjan leik. Um árabil var íslensk þjóð upptekin af útþenslu ísleskra kaupahéðna og banka, virtist sem heimurinn ætti ýmislegt ólært þar sem landinn fór um. Nú vitum við betur, bankarnir hrundu og enn á ný þarf íslensk þjóð að treysta á sjávarútveginn. Góð síldarvertíð er þá ekki einungis mikilvæg litla samfélaginu á Vopnafirði heldur Íslandi öllu.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir