Hugmyndin að baki fréttar varð til í óvissuferð grunnskólans fyrir fáeinum vikum en sbr. meðfylgjandi myndir höfðu hlutaðeigandi lagt á sig nokkra vinnu við að raungera vopnfirskan mjöð og ekki annað að sjá en að myndin hér að neðan sé fyrirtaks auglýsing fyrir "Besta bjórinn", bruggaður í Brugghúsinu Grand á Vopnafirði!
Að öllu gamni slepptu mun vel ganga í vinnslu HB Granda á Vopnafirði, frysting síldar stendur yfir og vaktir allan sólarhringinn eins og vera ber á slíkum tímum. Í gær voru í höfn Ingunn AK og Lundey NS.
