Kvennahlaup á Kvenréttindadaginn

19.06 2010 - Laugardagur

Vopnfirskar konur hafa tekið þátt í kvennahlaupinu um árabil. Í morgun voru mættar alls 40 konur, allt frá ungviði að eldri konum. Veður var með ágætum, fremur hlýtt þó sólarlaust væri. Að vanda skiptir mestu að vera með en alltaf eru það einhverjar sem nota hlaup sem þetta til að taka virkilega á því. Að hlaupi loknu fékk hver þátttakandi verðlaunapening um hálsinn, drykk og hollt meðlætil - auk þess sem allar höndluðu þær kvennahlauspbol.

Að venju kom í hlut Ungm.fél. Einherja að annast framkvæmd hlaupsins. Á meðan dömurnar hlupu hér sem annars staðar á Íslandi voru Einherjapiltar á leið norður þar sem þeir leika gegn Draupni í Boganum á Akureyri.

                





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir