Þrátt fyrir veður eins og "best gerist erlendis", einstaka veðurblíðu s. s., var leikið á gervigrasinu í Boganum á Akureyri, sem telst heimavöllur Draupnis. Það lið er skipað mörgum frambærilegum leikmönnum sem eiga sína fortíð í stóru liðinum á Akureyri, KA og Þór. Heimamenn byrjuðu betur en vopnfirsku gestirnir voru fyrri til að skora, vítaspyrna var dæmd á 17du mínútu og úr henni skoraði Gísli Freyr örugglega - átti Gísli stólpaleik og fór fyrir sínum mönnum. Einungis 4 mínútum síðar hafði Draupnir jafnað og stefndi í jafna stöðu í hálfleik en á 38. mín. skoraði Ivo Bencun annað mark Einherja og fyrsta mark sitt fyrir Einherja síðan hann kom til liðsins.
Hafði Draupnir misst markvörð sinn útaf með rautt við lok fyrri hálfleiks hvað þýddi að gestirnir höfðu góð tök á leiknum í hinum síðari. Tvö mörk náði Einherji að skora, Ivo Bencun í bæði skiptin og skoraði þar með þrennu fyrir lið sitt og hefur vonandi fundið sig í nýju liði. Ivo er smám saman að falla betur að hinum íslenska knattspyrnuleik og svo sem fyrr greinir er óskandi að héðan af liggi vegur hans einungis uppá við - sem og liðsins alls. Mörk Ivo komu á 50. og 75. mín. og stefndi allt í að slík yrðu úrslitin, 4:1, en rétt undir lok viðbótartíma skoruðu heimamenn og bættu stöðu sína ögn.
Tveir sigrar og 6 stig í 2 síðustu leikjum er prýðisgott veganesti í næstu leiki; um næstu helgi er leikið í Eyjafirðinum að nýju, Eyjafjarðarsveit nánar til tekið, liði þeirra, Samherjum. Sem stendur vermir lið Samherja botnsæti riðilsins en að sjálfsögðu er engin ástæða til vanmats heldur halda höfði og leika til sigurs líkt og verið hefur gjört að undanförnu.
Meðfylgjandi myndir úr Boganum tók Björn Grétar Baldursson.
