Það eru ætíð tímamót þegar ný hreppsnefnd kemur saman til fyrsta fundar enda framundan 4 ára tímabil við stjórn tiltekins sveitarfélags. Ávallt eiga sér stað breytingar í hreppsnefnd, að þessu sinni er endurnýjunin næstum alger. Einungis Guðrún Anna Guðnadóttir og Eyjólfur Sigurðsson hafa einhverja reynslu, hún eftir 4 ára setu sem aðalmaður, hann sem varamaður.
Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps er þannig skipuð:
Þórunn Egilsdóttir, oddviti; Guðrún Anna Guðnadóttir, varaoddviti; Bárður Jónasson, Fjóla Valsdóttir, Björn G. Hreinsson, Sigríður E. Konráðsdóttir og Eyjólfur Sigurðsson.
Er nýrri hreppsnefnd hér með óskað velfarnaðar í störfum og munu efalítið njóta góðs af áralangri reynslu sveitarstjórans, Þorsteins.
