Silver Bergen er hingað komið til að flytja frystan fiskinn til fjarlægra landa, þarfar gjaldeyristekjur eru um það bil að verða til. Að sögn hafnarvarðar, Björgvins Hreinssonar, eru komin um borð um 600 tonn af síld og makríl, síld frá yfirtandandi vertíð - og fer líklega héðan með um 700 tonn.
Línubáturinn Háey II ÞH frá Húsavík hefur landað hér að undanförnu, komið með inn með ca. 5.5 tonn hvern dag. Fer aflinn til vinnslu á Húsavík, sem fer í stórum flutningabíl, en megnið á fiskmarkaðinn á Þórshöfn. Og talandi um Þórshöfn, Geirinn frá þeim stað, hefur sömuleiðis lagt upp héðan og gengið vel, komið með að landi milli 10 og 20 tonn dag hvern.
