Selárdalslaug fær andlitsupplyftingu

25.06 2010 - Föstudagur

Sundlaugin hefur löngum verið stolt vopnfirðinga þó íbúar skiptist í tvær fylkingar þegar kemur að umræðunni um hvert stefna skuli til framtíðar með hana, þ. e. rafvæða hversu mikið ef svo er hægt að komast að orði. Sama hvað gert verður er víst að staðsetningin á bökkum laxveiðiárinnar landsþekktu, Selá, er einstök en ellikerlingu flýr enginn, var löngu kominn tími á að laga aðkomuna - og hver er betur til þess fallinn en einmitt verkstjóri okkar að leiða það verk?

Mikil er breytingin, bæði breytist ásýndin og umferðaröryggið, en sundlaugin er á sama stað og væntir að eftir sem áður muni fólk kunna að meta frjálsræðið og gengur um mannvirkin með tilhlýðilegri virðingu.

    





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir