Dömurnar voru í óða önn að raka saman nýslegið grasið og biðu herrarnir á meðan - höfðu lokið slætti og biðu þess að geta sekkjað grasið. En svo sem sjá má vantaði ekki að ungu mennirnir væru íbyggnir á svip er heimildarmaður heilsaði uppá unga fólkið í morgun.
