Einherji lagði Samherja

27.06 2010 - Sunnudagur

Um það mun engu logið að yfirburðir Einherja voru miklir lengstum og með hreinum ólíkindum að liðið skyldi ekki hafa skorað fleiri mörk en þau 3 sem liðið náði þó að skora. Í annað sinn á tímabilinu skoraði liðið mark sem ekki var dæmt sem slíkt, Davíð þrumaði knettinum í slána og augljóslega inn en aðstoðardómari kaus að halda öðru fram. Svo fór að liðið náði forystu með marki Gunnlaugs Bjarnar en áður en hálfleikurinn var úti höfðu heimamenn jafnað  1:1.

Mættu gestirnir grimmir til leiks í s. h. og réðu lögum og lofum á vellinum, þrátt fyrir færi gekk þó illa að koma knettinum í netið. Símon braut ísinn þegar liðið var á leikinn áður en Davíð bætti því 3ja við og tryggði öruggan sigur á eyfirðingum - og 3ja sigur Einherja í röð í deildinnni. Eftir fremur erfiða byrjun er liðið smám saman að ná takt í leik sinn og n. k. fimmtudag er komið að næsta heimaleik er leikið verður gegn Leikni frá Fáskrúðsfirði. Eru þessi 2 lið í 2. og 3. sæti riðilsins og ljóst að hart verður barist og er það óskandi að fólk fjölmenni og hvetji drengina sína til sigurs - áfram Einherji!

Meðfylgjandi mynd sýnir liðshópinn frá sl. ári.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir