Fjölvirkjar ljúka námi

30.06 2010 - Miðvikudagur

Um markmið námsins var m. a. skrifað:

Markmið með námskeiðinu Fjölvirkjar – Menningartengd ferðaþjónusta - er að styrkja nemendur til starfa við ferðaþjónustu í Vopnafirði. Að greina ný tækifæri og nema aðferðir til að koma hugmyndum sínum á framfæri. Að styrkja og efla þátttakendur til fagmannlegrar þjónustu og kynna þeim möguleika innan greinarinnar.

Og ennfremur:

Takmark námsins var að skapa vöru sem gerlegt væri að bjóða strax sumarið 2010 og þróa næstu árin sem einn grunnþátta í s. k. menningartengdri ferðaþjónustu á Vopnafirði. Varan er tilbúin til neyslu og gerðar hafa verið áætlanir til næstu þriggja ára. Að því starfi loknu væntum við að fyrir muni liggja skipuleg ferð um slóðir Vopnfirðingasögu; vörður reistar á helstu sögustöðum; bæklingar útgefnir á íslensku og ensku; stuttir leikþættir skrifaðir; búningar frá þjóðveldisöld fyrir leiðsögumenn og leikara saumaðir; kort af svæðinu og örnefnaskrá í aðgengilegu formi, ásamt þjálfuðu liði heimamanna, sem eru tilbúnir til starfa við þjónustu við ferðamenn.

Þessi glaði hópur lauk sum sé námi sínu í gær með kynningu á verkefninu í Kaupvangi, sbr. meðfylgjandi myndir.

                                





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir