Beint í leiðarkerfi vefsins.
Miklu munar þegar blessuð sólin skín en svo sagan sé sögð eins og hún er hefur kvikasilfrið marað nær 10°C en 20 það sem af er sumri. Við sem búum við langa dimma vetur þráum geisla sólar, allt líf jarðar á tilveru sína undir þessum eldhnetti og þegar fólk finnur sér stað hlémegin við norðanáttina er víst að þar má bæði finna til hlýju og fá á sig þarfan lit.