Slæmt tap Einherja gegn Leikni

02.07 2010 - Föstudagur

Vonskan í veðrinu kom jafnt niður á báðum liðum, eðlilega, og gæði leiksins í fullu samræmi við aðstæður. Hins vegar virtist sem Leiknismenn mættu betur undirbúnir til leiks, okkar menn voru sjálfum sér ekki líkir lengstum svo sem úrslitin segja til um. Mörkin sem Einherji fékk á sig voru af ódýrari gerðinni og vonandi að þessi leikur hafi verið undantekning frá reglunni og menn mæti gallvaskir til leiks næst. Missti liðið áður en yfir lauk tvo menn af velli fyrir heldur klaufaleg brot.

Með tapinu er Einherji fallinn í 3ja sæti riðilsins, leikurinn var s. k. 6 stiga leikur og með sigrinum færðist Leiknir úr 3ja sætinu í annað. 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir