Vopnafjarðardagar verða Vopnaskak

05.07 2010 - Mánudagur

Það er hugur í aðstandendum hátíðar en þó minna fjármagn sé til skiptanna verður eitt og annað í boði fyrir gesti Vopnaskaks - með þátttöku íbúa og félagasamtaka. Svo sem fram kemur á auglýsingu hér á vefsíðunni, sbr. Viðburðir, hefst hátíðin með golfmóti á fimmtudagskvöld, sem er í höndum Golfklúbbs Vopnafjarðar að þessu sinni.

Á föstudag 09. júlí er fjölskylduskemmtun í félagsheimilinu Miklagarði kl. 20:00 með Jóhönnu Guðrúnu, Ingó og Veðurguðunum - og stórdansleikur síðar um kvöldið með sama bandi.

Á laugardag er þáttur Ungm.fél. Einherja drjúgur en kl. 10:30 hefst Kapphlaupið mikla, ratleikur, fyrir 14 ára og eldri en annar minni fyrir þau yngri e. h. ásamt ýmsum leikjum öðrum. Markaður verður einnig í miðbæ Vopnafjarðar fram eftir degi, fótbolti kl. 16:30 og kl. 19 opna vopnfirðingar sumir hús sín og bjóða til súpuveislu. Um kvöldið, kl. 22, verður dansað á torginu.

Á sunnudag bjóða svo húsráðendur á Bustarfelli heim á degi safna á Íslandi.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir