Tekið til hendi í Ollasjoppu

05.07 2010 - Mánudagur

"Er Óla alveg sama hvernig þetta er gert!?" spurði glottandi Jón Sigurðar þann er þetta ritar og einn úr hópi málaradeildar Einherja ... Auðvitað er Óla, hinum nýja Olla, hreint ekki sama hvernig verkið er unnið og leitaði þar af leiðandi til kunnáttumanna svo sem myndirnar sýna glögglega. Raunar var það mat annars vegfarenda að engu máli skipti hvernig þetta yrði gert, sjoppan myndi alltaf líta betur út!

Eins og sumarið hefur verið fram til þessa gekk á ýmsu, á tímabili töldu menn sig vera komna í annað tímabelti og það töluvert hlýrra en þegar innlögnin náði sér á strik tóku hinir sömu að kannast við sig. Annars gekk verkið vel, einstaka dropa létu menn ekki trufla sig við verk sitt en undir lokin voru droparnir farnir að þéttast verulega og hvað var betra en að halda hópinn í vöfflukaffi til Aðalbjörns og Tryggva - og má nærri geta að þar hafi sumir náð að sporðrenna þeim nokkrum á mettíma! Þess ber að geta að sami Aðalbjörn hafði áður mætt á svæðið og veitt þarfa faglega ráðgjöf.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir