Vopnaskak hefst í dag

09.07 2010 - Föstudagur

Ef einhvern tímann er þörf fyrir veðurguði þá er það nú um stundir en sbr. frétt gærdagsins var haust á miðju sumri. Á hinn bóginn horfum með björtum augum til komandi daga þar sem vopnfirðingar og velkomnir gestir þeirra munu skemmta sér á Vopnaskaki.

Í kvöld kl. 20:00 er fjölskylduskemmtun með Ingó, Veðurguðunum og Jóhönnu Guðrúnu, Evróvisjónstjörnu - allir eru velkomnir án endurgjalds.

Kl. 23:00 hefst stuðballið með bandinu áðurnefnda og má vænta að dansað verði fram eftir nóttu af hjartans list og vonandi að þeir sem á annað borð eiga heimangengt muni mæta í Miklgarð í kvöld.

Á morgun hefst dagurinn á Kapphlupinu mikla, ratleik um þéttbýli Vopnafjarðar, kl. 13:30 hefst fjölskyldudagur að hætti Einherja og verður mikið í boði, s. s. markaðstorg, lifandi tónlist, grill, leikir ýmis konar fyrir alla fjölskylduna.

Um kvöldið, kl. 19, er komið að heimboði víðs vegar um þorpið þar sem góðmeti í formi súpu er í boði.

Frá og með kl. 22 skal tvistað á útiskemmtun og er reiknað með að þar mæti breiður aldurshópur.

Á sunnudag hefja golfarar leik kl. 11:00 á golfmóti klúbbsins, kl. 14 hefst Bustarfellsdagur með messu sr. Stefáns Más í garðinum.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir