Kvaðst Siggi nota fjórhjólið sumar sem vetur, meira að vetri því fátt væri ánægjulegra en að aka um harðfrosna snjóbreiðu í fögru vetrarveðri og þá ávallt með frúna meðferðis því hennar er ánægjan ekki síður en hans. Er gjarnan farið í hópi vina, allir vel útbúnir reiðubúnir að takast á við náttúruna en mikil áhersla er lögð á að fara um landið með virðingu við móður náttúru. Sagði Siggi þetta vera lífið og er engin ástæða til að leggja ekki trúnað í orð hins reffilega fjórhjólamanns.
Aðrir nota samskonar farartæki sem vinnutæki en vopnfirðingar hafa notið starfskrafta Bjarna knattspyrnukappa Þorsteinssonar á golfvellinum í sumar. Litu heimildarmaður og Friðrik Frissi Sigurjónsson til Bjarna á vellinum í dag og mátu aðstæður með hliðsjón af slætti. Eftir hressilega úrkomuna er völlurinn víða blautur vel, tekinn aðeins að þorna en svo sem áður hefur verið greint frá var golfmóti Vopnaskaks frestað til sunnudagsmorguns, þar ætlar Bjarni meðal annarra golfhetja að keppa.