Þrátt fyrir að vera með Veðurguði í bænum fór lítið fyrir blessun þeirra því sannast sagna setti svalur norðanvindurinn svip sinn á stemninguna en lengi vel gerði fólk sitt besta til að njóta þess sem í boði var. Þegar himnarnir opnast að auki kemur rót á fólk og það var einmitt niðurstaðan, dagskráin smám saman fjaraði út.
Í boði var útimarkaður, leikjadagskrá Einherja, er einnig bauð upp á grillaðar pylsur, og lifandi tónlist með frábærum piltum en Eyjólfur og Alexander Aron létu kulið ekki á sig fá og skemmtu fólki á aðra klukkustund - svona eiga menn að vera! Þrátt fyrir nefndan kuldagjóstur var dagurinn ánægjulegur og breytti bæjarbragnum um stund auk þeirra hátt í 90 húsbíla er til Vopnafjarðar komu umliðna helgi.