Maður er manns gaman og fátt er ánægjulegra en að vera í góðra vina hópi. Það reyndi Sandra sl. föstudag, það tjáði hún heimildarmanni daginn eftir brosandi út undir eyru hafandi reynt raddböndin til hins ýtrasta! Sjálfsagt hefur Flökkurum ekki leiðst innan um sitt fólk og á fjölskyldutónleikunum var stuð svo mikið að þakið ætlaði af húsinu!