Óskandi er að hefð hafi skapast með þessum fyrsta súpudegi á Vopnafirði en það góða fólk sem opnaði hús sín og bauð gestum upp á kjötsúpu þennan dag eru hér með þakkir færðar. Sérlega ánægjulegt var að heilsa upp á gestgjafana og njóta þeirra krásinga sem í boði voru. Þeir sem buðu til veislu voru: Álfheiður í Skálum - hugmyndin mun vera hennar að auki - Svanborg Víglunds og Ellert, Inga Maja og Eyjólfur, Sigurbjörg og Þorsteinn, Helga Jakobs og Didda Ara.