Ákaflega skemmtileg stemning myndaðist í og við fiskmarkaðinn þegar boðið var upp á lopa- og flíspeysuball með heimabandinu Kleópötru og söngfuglunum Baldvin og Alexander Aron. Svo fór að fólk dansaði sig sveitt og var sá sem þetta ritar sannarlega í þeim hópi og sér ekki eftir því! Ljóst er að Guðmundur húseigandi fær beiðni um afnot af þessu húsi fyrr en síðar enda möguleikar miklir með ágætan sal og vel varið port fyrir framan.