Bustarfellsdagur tókst vel

12.07 2010 - Mánudagur

Vopnfirðingar og lengra aðkomnir gestir hafa um árabil fjölmennt í minjasafnið á Bustarfelli - á því var engin breyting í gær því vel var mætt þrátt fyrir þungbúinn himinn og fremur lágt hitastig. Alltaf er eitthvað nýtt sem ber fyrir augu auk þess sem ávallt er ánægjulegt að gefa sér tíma til að staldra við og rabba við fólk. Hjáleigan hefur að sönnu umbylt starfi safnsins og sýndi sig að á stundum sem þessum mættu fermetrarnir e. t. v. vera fleiri þó notaleg þrengslin tilheyri heimsókn sem þessari.




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir