Aðspurður sagði Ingólfur það í sjálfu sér ekki flókið mál að leysa, að mála þessa stæðilegu turna, tíu að tölu. Allt væri þó undir veðrinu komið og sl. vikur hafa tækifærin verið fá, einn og einn dagur á 2 vikum en hann þarf bæði þurrk og stillu til að geta athafnað sig. Loks hefur stytt upp um stund, tækifærið var komið og það hefur málarameistarinn nýtt sér - sílóin hafa miklum breytingum tekið. Fyrirtækið, HB Grandi, hefur gefið það út að það muni ganga eins vel frá umhverfi sínu og við verður komið, má staðhæfa að málum þessara myndarlegu sílóa séu óræk sönnun þess að staðið verði við loforðið.