Dagskrá Kátra daga er að vanda fjölbreytt en nefna má Lasertag á grunnskólalóðinni á Þórshöfn, Langaness Arthisphere á Ytra-Lóni, fyrsta kaffihús á list-farfuglaheimilis Íslands á Ytra-Lóni opið, erindi Sifjar Jóhannesdóttur í Sauðaneshúsi og tónleikar Túpílaka í Þórsveri á morgun, fimmtudag 14.
Á föstudag heldur dagskráin áfram með Kátudagamóti í Lasertag, myndlistarsýningu Gullu Sig á Veitingastaðnum Eyrin, málverk, handverk og bækur í grunnskólanum, gönguferð af Brekknaheiði upp á Gunnólfsvíkurfjall, dorgveiði, gömludansaball í Þórsveri og dansleikur á Eyrinni.
Á laugardag m. a. útimarkaður í skrúðgarðinum, Langanesvíkingurinn á sama stað sem og bjórtölt hestamanna. Hans klaufi hyggst líta í heimsókn. Bæjarrölt og grillveisla á Eyrinni - götusöngur við Eyrina. Barnaball í Þórsveri, unglingaball og loks dansleikur með Skítamóral - allt í félagsheimilinu.
Á lokadegi bæjarhátíðarinnar er gönguferð á Öxarfjarðarheiði, messa í Sauðaneskirkju og dagskrá í Svalbarðsskóla tileinkuð Jóni Trausta.