Austfjarðatröllið á Vopnafirði

15.07 2010 - Fimmtudagur

Af íslendingum hefur löngum farið sögur um styrk þeirra og keppni þeim í blóð borin. Dagana 12.-14. ágúst í sumar er komið að næstu kraftakeppni um Austfjarðatröllið og hefur Magnús Ver lofað að í hópi keppenda verði nokkrir af sterkustu mönnum eyþjóðarinnar. Eins og gefur að skilja á einn og einn kappinn við meiðsli að stríða, menn bjóða líkama sínum á stundum meira en hann í raun þolir.

Þegar nær dregur verður dagskráin auglýst betur en keppt verður í 2 keppnisgreinum hér á Vopnafirði eins og ávallt, valinn tími þegar flestir eiga þess kost að fylgjast með. Á Vopnafjarðardögum 2008 kepptu okkar hraustmenni í aflraunum og þar fór fremstur meðal jafningja Bárður Jónasson, spurningin er hvort við getum vænst þess að sá ágæti maður verði meðal keppenda í tröllakeppninni?

Þess má að lokum geta að sunnudaginn 01. ágúst n. k. sýnir ríkissjónvarpið loks keppnina frá sl. ári.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir