Naumt tap Einherja

17.07 2010 - Laugardagur

Það hefur orðið hlutskipti leikmanna Einherja að leika í rigningu og þungbúnu veðri alla heimaleiki sína, að þessu sinni fór vindurinn hægar yfir en leikjunum þar á undan. Völlurinn var blautur vel en án roksins eru aðstæður sem þessar bráðskemmtilegar til knattleiks. Fyrri hálfleikur var jafn allan tímann, bæði lið sköpuðu sér færi og víst má fullyrða að lukka var yfir gestunum er Bjartur var felldur innan teigs snemma leiks. Hinum megin var sama lukka með heimamönnum er bjargað var á línu og síðar varði Tomislav meistaralega upp við samskeyti marksins.

Sama var upp á teningnum í síðari hálfleik en bit vantaði í sókn heimamanna þegar brá fyrir ágætum samleik upp völlinn. Það voru gestirnir sem nýttu sér mistök í vörn heimamanna 2var og komst í 2:0 áður en Elmar Þór minnkaði muninn í 2:1 er skammt var eftir af leik. Við markið lifnaði yfir heimamönnum, sem gerðu atlögu að marki Magna en allt kom fyrir ekki og tap staðreynd.

Meðfylgjandi eru myndir af leiknum, leikmenn í bland við áhorfendur, sem hvöttu sína menn áfram til dáða.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir