Eins og vænta mátti sviku hnallþórur Hjáleigunnar engan né annað það sem í boði var en að ósekju hefðu vopnfirðingar mátt taka betur við sér enda loks tekið að birta til - og þegar léttir yfir himnaföðurnum léttir einnig yfir mannfólkinu. Meðfylgjandi myndir sýna stemninguna á Bustarfelli í dag - bestu myndirnar tók dóttir heimildarmanns, Elma Rún. Verði ykkur að góðu.