Með tilkomu Múlastofu í Kaupvangi lá ljóst fyrir að minningu bræðranna Jóns Múla og Jónasar Árnasona skyldi haldið í heiðri. Setrið þjónar sínum tilgangi árið um kring, einkum að sumarlagi þegar ferðamanna er að vænta. Menningarmálanefnd sveitarfélagsins ákvað að menningarhátíð setrinu tengd skyldi ennfremur vera komið á og dagana 09. t. o. m. 15. ágúst mun hin fyrsta verða haldin.
Dagskrá hátíðar miðast við helgina 13.-15. ágúst en alla vikuna verður starfrækt listasmiðja (eða smiðjur), svo sem áður var gert í tengslum við Vopnafjarðardaga, undir handleiðslu fjöllistamannsins Valgeirs Skagfjörð. Mun Valgeir vinna úr efni þeirra bræðra en sem leikari, leikskáld, leikstjóri, tónlistarmaður og tónskáld ræður hann yfir því sem til þarf en afrakstur smiðjunnar verður íbúum og gestum til sýnis í félagsheimilinu Miklagarði laugardaginn 14. Standa vonir til að ungmennin verði jafn dugleg og áður að sækja listasmiðjuna þó leiðbeinandinn sé einungis einn - Valgeir kann til verka, er m. a. kennaramenntaður og hefur auk heldur unnið með ungmennum á LUnga.
Munu íbúar Vopnafjarðar verða hvattir til að skreyta bæinn sinn þegar fram í vikuna kemur en á föstudagskvöldið 13. (sem boðar vonandi gott eitt) verður bæjargrillið á skólalóðinni með svipuðu sniði og áður - ljóst er að lifandi tónlist verður m. a. í boði.
Á laugardagskvöld, að aflokinni sýningu vopnfirsku ungmennana, verða stórtónleikar með hinu frábæra bandi Pálma Gunnarssonar, Park Projekt, en með bandinu syngur einn efnilegasti söngfugl landsins, Hrund Ósk Árnadóttir. Af þessum tónleikum má enginn missa! Boðið verður síðan upp á baropnun með mögulega lifandi tónlist.
Á sunnudag verður léttmessa í Vopnafjarðarkirkju en þær hafa notið æ meiri vinsælda. Á sl. árum hafa kyrjað þar m. a. Valdi Á sjó Halldórs, Ellen Kristjánsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir og Kristjana Stefánsdóttir. Að þessu sinni býðst vopnfirðingum enn einn snillingurinn því Kristján Kristjánsson, KK, mun halda uppi stemingu í kirkjunni. Að vanda mun séra Stefán Már þjóna fyrir altari en ávallt er létt yfir prestinum okkar á þessum stundum og messan í heild hin yndislegasta í alla staði.
Mögulega munu ungmennin sýna sig á laugardeginum með einhverjum hætti en það er í höndum listamannsins og stjórnandans, Valgeirs, að ákvarða þar um. Múlastofa verður opin allan laugardaginn hverjum þeim er vill sækja menningarsetrið heim endurgjaldslaust.
Verið velkomin á menningarhátíðina Einu sinni á ágústkvöldi.