Einherji spilar í kvöld

27.07 2010 - Þriðjudagur

Meistaraflokkur Einherja mætir Hugin á Seyðisfjarðarvelli í kvöld kl. 20. Þetta er fjórði síðasti leikur liðsins á þessu leiktímabili og er von á mikilli baráttugleði því leikir þessara félaga hafa oft verið spennandi. Vopnfirðingar eru hvattir til að leggja leið sína á Seyðisfjörð til að styðja okkar menn.

Síðastliðinn föstudag lék Einherji við Dalvík/Reyni á Dalvíkurvelli. Leikurinn tapaðist 5-1 en mikil meiðsli hrjáðu Vopnfirðinga í leiknum. Dalvík/Reynir var yfir 1-0 í leikhléi en norðanmenn sóttu mjög í seinni hálfleik og bættu fjórum mörkum við. Gísli Freyr Ragnarsson skoraði mark Einherja á 86. mínútu.

Dalvík/Reynir vermir toppsætið í D-riðli þriðju deildar með 22 stig en Einherji situr í fimmta sæti með níu stig og á einn leik til góða. Einherji getur jafnað Hugin að stigum í kvöld en seyðfirska liðið er nú í fjórða sæti með tólf stig.




Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir