
Einherji mætti Hugin frá Seyðisfirði í þriðju deild Íslandsmótsins á Seyðisfjarðarvelli í gærkvöld. Huginn náði forystunni á 30. mínútu og var yfir 1-0 í hálfleik.
Seinni hálfleikur byrjaði vel fyrir Einherja því Gísli Freyr Ragnarsson jafnaði metin á 52. mínútu. Hvorugu liðinu tókst að bæta við öðru marki og leiknum lauk því með 1-1 jafntefli.
Einherji er enn í 5. sæti D-riðils, nú með 10 stig. Næsti leikur liðsins er við Draupni frá Akureyri þann 7. ágúst á Vopnafjarðarvelli.