Listasmjðja í tengslum við Einu sinni ... skráning hafin

04.08 2010 - Miðvikudagur

Á undanförnum árum hafa listasmiðjur verið starfræktar í tengslum við Vopnafjarðardaga og til Vopnafjarðar komið nokkrir af helstu listamönnum eylandsins. Í ár verður stjórnandinn einn, Valgeir Skagfjörð, en þýðir alls ekki að fjörið, sköpunin og gleðin verði nokkru minni en áður. Valgeir kann nefnilega ansi mikið þegar kemur að leik- og sönglist - og kennslu - því verandi leikari, leikstjóri, tónlistarmaður, tónskáld og kennari hefur hann eitt og annað að gefa áhugasömum ungmennum.

Á sl. ári sýndu krakkarnir okkar frábært verk, Brestir og brak, fyrir troðfullu húsi í Miklagarði. Það verður ekki endurtekið heldur mun Valgeir koma með eitthvað alveg nýtt og spennandi fyrir ungmennin að vinna með - og sýna á fjölskylduskemmtun í Miklagarði laugardaginn 14. ágúst n. k.

Allt byggist þetta þó á þátttöku krakkanna okkar, Valgeir er tilbúinn og bíður þess að fregna af áhuga heima fyrir. Skráningar hjá Magnúsi Má í símum 862-1398/473-1300 og 462-2303 - þegar í dag og þá í síma 862-1398. Eins má senda á netfangið magnus[hjá]vopnafjardarhreppur.is Tekið er við skráningum alla daga t. o. m. mánudaginn 09.

Eins og áhuginn hefur verið fram til þessa þarf vart að hvetja til þátttöku en það er þó hér með gert - takið þátt í skemmtilegasta verkefni ársins!





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir