Sigur gegn Draupni

08.08 2010 - Sunnudagur

Loksins voru veðurguðirnir í góðu skapi er Einherji lék heimaleik. Í gær tók liðið á móti Draupni frá Akureyri. Lauk leiknum með öruggum 6:2 sigri Einherja eftir að jafnt hafi verið í leikhléi 2:2.

Hófu heimamenn leikinn af miklum krafti og komust á upphafsmínútunum í 2:0 með mörkum Davíðs og Gunnlaugs Bjarnar - höfðu Einherjamenn öll tök á leiknum. Það átti eftir að breytast því svo virtist sem menn misstu einbeitinguna megnið af hálfleiknum, gekk andstæðingurinn á lagið og um miðjan hálfleikinn var staðan jöfn orðin, 2:2. Það sem eftir lifði hálfleiks gerðu bæði lið atlögu að markinu, Einherjar léku betur er á hálfleikinn leið án þess að leika vel.

Síðari hálfleikur var allur annar, heimamenn ákveðnir í að bæta fyrir skaðann og áður en leikurinn var úti höfðu okkar menn sett 4 til viðbótar, samtals sex, en þar sem athyglisgáfa þess er þetta ritar er ekki betri en svo verður markaskorara eigi getið að sinni en 4 mörk voru sannarlega gerð í síðari hálfleik! Meðfylgjandi er myndasyrpa frá leiknum og sem kunnugt er segir hver mynd meira en þúsund orð.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir