
Í dag, mánudaginn 09. ágúst, eru nákvæmlega 2 ár frá opnun Múlastofu í Kaupvangi en framundan er fyrsta formlega hátíðin setrinu tengd, Einu sinni á ágústkvöldi.
Í tengslum við menningarhátíðina verður listasmiðja starfrækt líkt og ítrekað hefur verið greint frá. Fer vel á að starfsemi hennar skuli hefjast einmitt í dag, á 2ja ára afmæli Múlastofu. Valgeir Skagfjörð er mættur í fjörðinn fagra innan skamms og mun kalla ungmennin saman til fyrsta stefnumóts í félagsheimilinu Miklagarði e. h. í dag en samtals hafa 20 krakkar tilkynnt þátttöku, sem telja verður góða niðurstöðu.
Er ljóst að Valgeir hefur úr miklum efnivið að vinna en fyrir hann, sem einn stjórnandi smiðjunnar (eða smiðjanna), er verkefnið ærið. Á hinn bóginn er um vanann mann að ræða og ljóst að verkefnið er öllum ánægjulegt - og spennandi verður að sjá afraksturinn á sviði Miklagarðs n. k. laugardag. Meira um það síðar.