Listasmiðjan komin af stað

10.08 2010 - Þriðjudagur

Í gær, réttum tveimur árum frá opnun Múlastofu í Kaupvangi, komu ungmennin í listasmiðjunni saman fyrsta sinni og hittu þar leiðbeinanda sinn, Valgeir Skagfjörð.

Eins og gjarnan er fóru þátttakendur sér hægt í fyrstu, þau þekkjast vel innbyrðis en voru að hitta Valgeir fyrsta sinni vel flest. Á undra skömmum tíma var var öll feimni á bak og burt, farið var í alls kyns leiki til að þjappa mannskapinn saman. Líst Valgeiri sérlega vel á hópinn, segir krakkana kurteisa, áhugasama og standa þeim sem hann hefur unnið með hingað til fyllilega jafnfætis - ekki verði vandamál að vinna með hópnum.

Farið verður í Kaupvang í dag, heilsað upp á meistara Jón Múla og Jónas en þá Valgeir báða og kann af þeim ýmsar sögur. Sum sé, starfið er hafið og verður spennandi að sjá hvað útúr því kemur svo sem sýningin n. k. laugardag mun endurspegla.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir