Keppendurnir í aflraunakeppninni um Austfjarðatröllið 2010 gáfu sig alla í þær 2 keppnisgreinar sem keppt var í á Vopnafirði í gær, föstudaginn 13. ágúst.
Hlýtt var í veðri er kapparnir hófu keppni um kl. 11:30 en nokkurt regn gerði keppendum erfiðar fyrir, bæði í Hönd yfir hönd - bíladrætti - og steinlyftu og þarf ekki að tilgreina nánar af hverju. Það breytti engu um að allir lögðu þeir sig fram, jötnarnir, sem til Vopnafjarðar voru mættir. Fremstir fóru tröllin tvö, Haffi og Goggi, en svo fór að Goggi vann báðar greinarnar. Haffi var í forystu eftir fyrsta keppnisdag og mun hafa haldið naumri forystu að aflokinni keppninni á Vopnafirði.
Hér fara nokkrar myndir af skemmtilegri keppninni.